Sögur af Ströndum

Viðtöl við fólkið á Ströndum — 249 upptökur, teknar upp á árunum 2019–2022.

Upptökur og umsjón: Kristín Einarsdóttir. Efnið er í eigu Hveravíkur.

Ár
249 þættir
09.05.2022

Guðjón Gunnarsson

Glæðir er lífrænn og bætaefnaríkur blómaáburður úr fersku þangi, hreinu vatni og sóda og framleiddur í litlum skúr á Reykhólum af Guðjóni Gunnarssyni sem jafnan er kallaður Dalli. Kristín Einarsdóttir brá sér yfir að Reykhólum og fékka að fræðast um framleiðsluna og að glæðir græðir ekki bara gróður af ýmsu tagi heldur hefur líka reynst fólki vel við t.d. exemi.

09.05.2022

Ólafur Ingimundarson – dagbækur

Ingimundur Ingimundarson fæddist og bjó alla tíð á Svanshóli í Bjarnarfirði. Hann skrifaði dagbækur frá því hann var unglingur og þangað til hann gat ekki lengur skrifað vegna heilsubrests. Ólafur Ingimundarson settist niður með Kristín Einarsdóttir rifjaði upp minningar um föður sinn og ræddi dagbókarskrifin.

09.05.2022

Sæbjörg Freyja, Marta og Bjarni

Kristín Einarsdóttir ætlar að koma sér upp hænsnakofa og leitaði sér því upplýsinga hjá fróðu fólki um hænsnarækt. Fyrst hringdi hún í Sæbjörgu Freyju Gísladóttur sem býr á Flateyri og er þar með þrjár tegundir af hænum. Því næst lagði Kristín leið sína í Bæ á Selströnd þar sem hjónin Bjarni Þórisson og Marta Guðrún Jóhannesdóttir búa. Þar í garðinum er hænsnakofi og fjórar hænur spranga um hlaðið með hananum en ein hænan er komin á aldur og dvelur í góðu yfirlæti alla daga á sínu hænsnapriki.

09.05.2022

Gísli Ólafsson, Ásmundarnesi

Á jörðinni Ásmundarnesi í Bjarnarfirði var stundaður hefðbundinn sauðfjárbúskapur fram undir 1970, eftir það lagði ábúandinn, Guðmundur Halldórsson, stund á lax- og silungseldi á jörðinni. Nýlega tók svo nýr eigandi Gísli Ólafsson við jörðinni og framundan eru miklar framkvæmdir. Kristín Einarsdóttir hitti Gísla og bað hann að segja frá nýju hlutverki Ásmundarness. Mynd: Ragna Guðmundsdóttir

09.05.2022

Krakkaveldi á Drangsnesi

Krakkaveldi er heiti á verkefni sem þær Hrefna Lind Lárusdóttir og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir komu með í Grunnskóla Drangsness. Kristín Einarsdóttir hitti þær stöllur og fékk þær til að segja frá verkefninu og svo fáum við að heyra nemendur segja frá útkomunni. Nemendurnir sem rætt var við heita Kári, Friðgeir Logi, Kristjana Kría og Katrín. Auk nemendanna var rætt við kennarann Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur

09.05.2022

Viktoría Ólafsdóttir

Viktoría Ólafsdóttir tók nýlega við rekstri Hótels Laugarhóls í Bjarnarfirði. Hótel Laugarhóll er núna rekinn í húsnæði þar sem var áður Klúkuskóli og þar var Viktoría í skóla en hún bjó sem barn og unglingur á Svanshóli í sama firði.

09.05.2022

Magga Stína

Tónlistarkonan, gleðigjafinn og lífslistakonan Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, flutti fyrir nokkru á Drangsnes og Kristín okkar Einarsdóttir heimsótti hana þar og fékk að heyra af hennar einstöku lífssýn og því að vera loksins hætt að vera rangstæð í lífinu.

17.03.2022

Esther og Eiríkur

Esther Ösp Valdimarsdóttir ásamt börnunum, Valdimari, Kormáki, Kolfinnu Vísu og Ástvaldi halda öðru hvoru veislu á heimili sínu þar sem þau fara í nokkurskonar heimsókn til einhvers tiltekins lands, elda t.d. mat sem er dæmigerður fyrir landið og gera ýmislegt sem landinu tengist. Kristín Einarsdóttir fór í heimsókn og fékk að taka þátt í landaveislu.

17.03.2022

Hrafnhildur Skúladóttir

Hrafnhildur Skúladóttir tók nýlega við sameinuðu starfi Íþrótta- og tómstundafulltrúa Strandabyggðar. Starfið er yfirgripsmikið og í mörg horn að líta en Hrafnhildur tekst á við verkefnin með jákvæðni og bjartsýni að vopni. Kristín Einarsdóttir hitti Hrafnhildi í íþróttahúsinu og fékk hana til að segja frá í hverju starfið felst.

17.03.2022

Davíð Ólafsson – Sighvatur Borgfirðingur

Davíð Ólafsson sagnfræðingur hefur varið miklum tíma við rannsóknir á efni Handritadeildar Landsbókasafns. Mikið af handritum þar eru skráð af Sighvati Borgfirðingi sem dvaldi nokkur ár á bænum Klúku í Bjarnarfirði. Kristín Einarsdóttir hitti Davíð og ræddi við hann um Sighvat Borgfirðing og almennt um fjársjóði handritadeildarinnar

17.03.2022

Ásgarður – Esther Ösp Valdimarsdóttir

Tækninni fleygir fram, stundum til góðs og stundum ekki. En eitt sem tæknin gerir mögulegt er að hægt er að stunda nám í sama skóla þótt nemendur séu mögulega staddir í mikilli fjarlægð hver frá öðrum og skólanum sjálfum. Fyrir stuttu var Esther Ösp Valdimarsdóttir ráðin skólastjóri Ásgarðsskóla, sem er einmitt rekinn alfarið á netinu og nemendur mæta heima hjá sér, hver við sína tölvu hér og þar á landinu og jafnvel í öðrum löndum. Kristín Einarsdóttir hitti Esther á skólastjóraskrifstofunni á Hólmavík og fékk að vita hvernig hægt er að reka skóla í skýjunum.

17.03.2022

Sýslið – Ásta Þórisdóttir og Svanur Kristánsson

Hjónin Ásta Þórisdóttir og Svanur Kristjánsson festu kaup á gömlu húsi á Hólmavík sem venjulega er kallað Sýslið. Í kjallara hússins hafa þau meðal annars komið fyrir svokölluðu fablabi og aðstöðu fyrir ýmiskonar námskeið. Kristín Einarsdóttir fór í heimsókn til þeirra hjóna og fékk að fræðast um ýmislegt sem þau hafa tekið sér fyrir hendur og hvernig þau hugsa sér að nýta aðstöðuna fyrir samfélagið.

10.02.2022

Þorbjörn Jónsson

Nú á dögum væru Bjarnarbófarnir líklega ekki að ræna banka eins og bankaræningja var háttur áður, fyrr sagði Þorbjörn Jónsson sparisjóðstjóri Sparisjóðs Strandamanna þegar hann kom við hjá Kristínu Einarsdóttur á leið heim af skíðanámskeiði.

10.02.2022

Strandapósturinn

Strandapósturinn kom fyrst út árið 1967 og eins og segir þar í formála var ritinu ætlað að vera tengiliður milli fólksins heima og heiman – bregða skyldi upp myndum horfinna tíma og líðandi stundar. Kristín Einarsdóttir flettir oft í gömlum og nýjum Strandapóstum og rakst tvær frásagnir sem hún, í styttri útgáfu, deildi með hlustendum í dag

10.02.2022

Kristin Schram og ísbirnir

Kristín Einarsdóttir játaði í Mannlega þættinum í dag að á göngum sínum um Bjarnarfjarðarhálsinn, sem er í næsta nágrenni við heimili hennar, lítur hún stundum í kringum sig til að fullvissa sig um að ekki sjáist til hvítrar skepnu á hæðunum í kring, sem gæti þá mögulega verið hungraður ísbjörn. Kristín leitaði því til Kristins Schram þjóðfræðings sem um árabil hefur stundað rannsóknir á sögum og sögnum af ísbjörnum.

10.02.2022

Guðrún Ásla og Café Riis

Á heimasíðu Café Riis segir: Café Riis er glæsilegur veitinga og pizzustaður í hjarta Hólmavíkur. Í boði er meðal annars heimabakað bakkelsi, súpur í hádeginu, fiskréttir og pizzur. Þetta elsta hús Hólmavíkur var byggt árið 1897 en svo gert upp árið 1995 og þar opnaður veitingastaður. Hlutar innréttinga staðarins eru útskornir og myndefnið er sótt í hin ýmsu galdratákn, en Strandamenn voru á öldum áður taldir galdramenn hinir mestu og eru reyndar sagðir svo enn. Um áramótin tók nýr eigandi við staðnum, Guðrún Ásla Atladóttir og Kristín Einarsdóttir, hitti hana þar sem hún var nýbúin að leggja á borð fyrir grunnskólanemendur sem þar eru meðal annarra í mötuneyti.

10.02.2022

Dagrún Ósk og Jón Jónsson

Þjóðfræðifeðginin Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson söfnuðu í nokkur ár sögum af álagablettum af Ströndum. Þau settu upp sýningu á afrakstrinum og gáfu svo út bók. Eins og venja er var haldið útgáfuhóf þegar bókin kom út og því var bæði var streymt og eins voru gestir á staðnum. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, var ein gesta og hún tók upp áhugaverða tölu þeirra feðgina sem við fengum að heyra í þætti dagsins

11.01.2022

Systurnar og Steinunn á Skriðinsenni

Á Skriðinsenni í Bitrurfirði á Ströndum búa mæðgurnar Steinunn Hákonardóttir og móðir hennar Lilja Jónsdóttir, Ólafía systir Lilju býr á Hólmavík en dvelur oft á Enni. Systurnar tvær eru komnar yfir nírætt og Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fékk að koma í heimsókn og rifjaði upp með þeim systrum minningar frá liðinni tíð

11.01.2022

Kaldrananeskirkja – Jóhann Björn Arngrímsson

Á Kaldrananesi í Bjarnarfirði er kirkja sem verið er að gera upp,en þar hefur verið kirkjustaður í margar aldir. Jón Jónsson þjóðfræðingur benti Kristínu Einarsdóttur, okkar konu á Ströndum á þjóðsögu sem tengist staðnum og eftir að hafa lesið hana fór hún í heimsókn í kirkjuna og ræddi við formann sóknarnefndar Jóhann Björn Arngrímsson.

11.01.2022

Bragi Þór Valsson – Tónlistarskólinn

Kristín Einarsdóttir hitti á dögunum deildarstjóra í tónskóla Hólmavíkur Braga Þór Valsson og tvo nemendur og kórfélaga, þær Kolfinnu Visu Aspar Eiríksdóttur og Ísafold Lilju Óskarsdóttur. Kórinn sem Bragi stjórnar tók nýlega upp lagið Jólin koma sem er eftir Braga og við heyrðum hvað stúlkunum finnst um söng og Bragi sagði frá kórstarfinu. Viðtal Jólin koma

11.01.2022

Jólin koma – Barnakór Strandabyggðar

Barnakór Strandabyggðar syngur lagið Jólin koma eftir Braga Þór Valsson, sem stjórnar kórnum.

01.12.2021

Eiríkur Valdimarsson

Á öllum árstímum erum við Íslendingar uppteknir af veðrinu, á sumrin afþví að þá erum við mögulega að ferðast um landið – á vetrum af því þá getur færð spillst og ef veður versnar þarf að huga að lausum munum eins og oft heyrist minnt á. Eiríkur Valdimarsson er ekki veðurfræðingur sem birtist á skjánum en hann hefur um lengi velt fyrir sér alþýðlegum veðurspám og bjó nýlega til feisbúkk síðuna Alþýðulegar veðurspár. Kristín Einarsdóttir hitti Eirík og fékk hann til að segja frá áhuga sínum og rannsóknum á veðri.

01.12.2021

Sigvaldi Snær Kaldalóns

Á Sprengisandi, Ég lít í anda liðan tíð, Ísland ögrum skorið og mörg önnur lög samdi Sigvaldi Kaldalóns og öll hafa þau glatt, og kannski líka huggað, okkur í flutningi bæði einsöngvara og kóra síðan þau voru gefin út. En Kristín Einarsdóttir hitti einmitt í sumar Sigvalda Snæ Kaldalóns sem kynnt hefur sér sögu útgáfu laga afa hans tónskáldsins Sigvalda Kaldalóns.

01.12.2021

Björk Ingvarsdóttir

Hjónin Björk Ingvarsdóttir og Pétur Matthíasson tóku nýverið við Útgerðinni Vissu á Hólmavík. Kristín Einarsdóttir hitti Björk þar sem hún stóð við að beita og ræddi við hana um dagleg störf í útgerð

Sögur af Ströndum

Upptökur og umsjón: Kristín Einarsdóttir. Efnið er í eigu Hveravíkur.