Svona er útsýnið úr skólastofu dreifnámsins á Hólmavík en frá því segir Eiríkur Valdimarsson umsjónamaður verkefnisins. 8. nóvember 2016
Halldór Logi Friðgeirsson – veiðimennska
Halldór Logi Friðgeirsson segir hér frá veiðimennsku af ýmsu tagi. 15. nóvember 2016
Anna Björg Þórarinsdóttir – sláturgerð
Hér segja mæðgurnar Katrín Þóroddsdóttir og Anna Björg Þórarinsdóttir sem býr á Drangsnesi, frá sláturgerð. 22. nóvember 2016
Leikfélag Hólmavíkur
Hér er stutt umfjöllun um leiklist á Hólmavík og viðtal við leikstjórann Guðbjörgu Ásu Jóns- og Huldudóttur en leikfélagið setti upp leikritið Blessað barnalán í haust. 29. nóvember 2016
Jólatré á Hólmavík
Hér er fylgst með því þegar hjónin Svanhildur Jónsdóttir og Jón Vilhjálmsson kveiktu jólaljósin á trénu í garðinum sínum að viðstöddum Hólmvíkingum og nærsveitungum. 6. desember 2016
Leikskólinn á Hólmavík
Börnin á Leikskólanum á Hólmavík heimsótt í söngstund, rætt við Kristberg Ómar Steinarsson og Aðalbjörgu Signý Sigurvaldadóttur leikskólastjóra
Kristín Einarsdóttir Jólaþáttur
Jóladag árið 2016 var þessi þáttur fluttur á Rás 1: Fyrstu jólagjöfina átti ég í mörg ár. Jólaandinn svífur yfir Ströndum nú sem fyrr – Strandamenn fæddir um miðja síðustu öld og börn fædd á þessari, segja frá sínum jólum á Ströndum… og þessir Strandamenn eru Sveinn Kristinsson frá Dröngum, Helga Gunnarsdóttir frá Eyri , Dögg Ólafsdóttir frá Sandnesi og börnin í Grunnskólanum á Drangsnesi. Kvennakórinn Norðurljós syngur tvo sálma og síðast en ekki síst syngur Gunnur Arndís Halldórsdóttir lagið Helga nótt.
Ingólfur Haraldsson Björgunarsveitin Björg Drangsnesi
Ingólfur Árni Haraldsson formaður Björgunarsveitarinnar Bjargar Drangsnesi segir frá hlutverki sveitarinnar, tækjakosti, verkefnum og fjáröflunarleiðum. Hér eru svo bankaupplýsingar björgunarsveitarinnar á Drangsnesi ef þið viljið sleppa við að fara út vonda veðrið til að kaup flugelda: Björgunarsveitin Björg Drangsnesi
kt. 711090-2079 Reikningsnr. 0316-26-000265. 28. desember 2016
Rakel Valgeirsdóttir
Hér er viðtal við Rakel Valgeirsdóttur þjóðfræðing – Rakel sagði frá Minjasafninu Kört í Trékyllisvík þar sem sett var upp sýning um ævi og störf Guðrúnar Bjarnadóttur sem jafnan var kennd við fötlun sína og kölluð Gunna fótalausa – Guðrún var án efa ein mesta hetja sem Ísland hefur alið og ættu allir Strandamenn að vera stoltir af þessum sveitunga sínum. 10. janúar 2017
Þorrablót Drangsnesi 2017
Kristín hitt undirbúningsnefnd þorrablótsins á Drangsnesi og ræddi við Friðgeir, Mörtu og Bjarna. 17. janúar 2017
