Gunnsteinn Gíslason

Kristín hitti Gunnstein Gíslason sem margir þekkja en hann rak kaupfélagið í Norðurfirði árum saman og hefur lagt þessari sveit margt gott til á sinni löngu starfsævi en hann er fæddur árið 1932 og er enn að vinna, þótt verkefnin hafi breyst. Í dag rekur Gunnsteinn gistiheimilið Bergistanga í Norðurfirði. 3. ágúst 2017

Elín Agla Briem

Elín Agla segir hérfrá því þegar hún varð fyrir göldrum á Ströndum, hvernig lífið hinni fögru sveit Árneshreppi á Ströndum heillaði hana eins og svo marga aðra. 15. ágúst 2017

Hrefna Þorvaldsdóttir

Hrefna Þorvaldsdóttir flutti norður í Árneshrepp fyrir þrjátíuogfimmárum en ætlaði upphaflega að vera þar í tíu ár. Hrefna talar eftirminnilega um listina að vera og annað sem á daga hennar hefur drifið. 22. ágúst 2017

Viktoría Ólafsdóttir

Hér segir Viktoría Ólafsdóttir kaupfélagsstjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík, frá uppvextinum í Bjarnarfirði, skólagöngunni á Hólmavík og víðar og stöðu kaupfélagsins.

Magnús Rafnsson

Hér var rætt við Magnús Rafnsson um galdramál á Ströndum. Í einu galdramálinu var Klemus nokkur dæmdur fyrir að hafa verið valdur að því að húsmóðir á bæ einum lagðist í flakk, víti sem vissulega ber að varast. 19. september 2017