Nýr bátur á Drangsnesi

Þann 9. mars kom nýr bátur til hafnar í svokallaðri Kokkálsvík þar sem er hafnaraðstaða Drangsnesinga. Haldið var upp á daginn með pompi og prakt, og Kristín Einarsdóttir mætti á staðinn og spjallaði skipstjórann Ingólf Haraldsson, föður hans Harald Ingólfsson og Finn Ólafsson Oddvita, auk þess sem heyrðist í Óskari Torfasyni, framkvæmdastjóra útgerðarinnar á staðnum. 9. mars 2019

Ásta Þórisdóttir

Ásta Þórisdóttir lauk nýverið meistaranámi í hönnun frá Listaháskóla Íslands, lokaverkefnið samanstóð af veggteppi, úlpu og færanlegu eldhúsi, en upphafið má rekja til þess þegar Ásta var að losa kartöflugarðinn sinn við svokallað illgresi. Kristín Einarsdóttir ræddi við Ástu í Strandapistli dagsins. 14. maí 2019

Agnes Jónsdóttir – Leikfélag Hólmavíkur sýnir leikritið um Nönnu systur

21. maí. Leikfélag Hólmavíkur er eitt þeirra leikfélaga á landsbyggðinni sem enn setur upp eina eða fleiri sýningar á hverju ári til mikillar gleði fyrir gesti og greinilegt er að gleðin er ekki síður við völd innan leikhópsins. Agnes Jónsdóttir er ritari leikfélagsins en hún hefur verið viðloðandi starfið frá því hún var barn að alast upp á Hólmavík. Kristín Einarsdóttir hitti Agnesi þegar hún var nýkomin heim úr leikferð með leikritið um hina óskammfeilnu Nönnu systur. 21.maí 2019

Jónína Hólmfríður Pálsdóttir á Þorpum

Bæjarnöfn eru mörg sérstök og stundum er erfitt að átta sig á hvað liggur að baki nafngiftinni. Eitt slíkt bæjarnafn er hér í Strandabyggð, þar er bærinn Þorpar. Kristín Einarsdóttir hitti Jónínu Pálsdóttur sem er fædd og uppalin í Þorpum og ræddi við hana um bæjarnafnið og ýmislegt annað. 4. maí 2019

Grunnskólinn á Drangsnesi, leikritið Sossa

Þann 30 maí 2019 var árshátíð grunnskóla Drangsness haldin með pompi og prakt. Aðalatriði kvöldsins var leikritið Sossa, leikgerðina unnu nemendur grunnskólans upp úr fjórleik Magneu frá Kleifum um sveitastelpuna Sossu. Eftir leiksýninguna hitti Kristín Einarsdóttir Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur skólastjóra og Aðalbjörgu Óskarsdóttur kennara

Grímsey á Steingrímsfirði

Grímsey á Steingrímsfirði er sannkölluð náttúruperla, sérstaklega þegar þúsundir lunda hafa búið þar um sig. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fór með bátnum Sundhana út í eyjuna og spjallaði við skiptstjórann Franklín Ævarson og Möggu Stínu sem mun starfa sem leiðsögumaður í eynni í sumar. 25. júní 2019

Jósef Blöndal


Jósep Blöndal læknir er af mörgum kunnur vegna læknisstarfa sinna í Stykkishólmi. Þangað hafa um sex þúsund Íslendingar lagt leið sína vegna bakvandamála og margir fengið bót sinna meina. Jósep hóf sinn læknisferil á Ströndum og kann margar sögur af veru sinni þar, enda er Jósep frábær sögumaður. 30. apríl 2019

Marta Guðrún Jóhannesdóttir Grunnskóla Drangsness


Fyrir jólin eru haldnar jólaskemmtanir með ýmsu móti um land allt og misfjölmennar. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fór á jólaskemmtun Grunnskóla Drangsness og leikskólans Krakkaborgar en þar eru samtals þrettán nemendur. Kristín ræddi við skólastjórann Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur og nokkra nemendur. 24. desember 2018

Viðtal

Jólaball