Hafdís Sturlaugsdóttir – fuglatalningar
Kristín heimsótti kríuvarp og virti fyrir sér þennan fallega og flugfima fugl. Að því loknu brá hún sér til Hafdísar Sturlaugsdóttur í Húsavík við Steingrímsfjörð sem tekið hefur þátt í fuglatalningaverkefni á vegum Náttúrufræðistofnunar. 28. maí 2019
Einar Unnsteinsson
Einar segir frá byggingu hússins í Steinholti en það er nær alfarið reist úr rekavið
Ásta Þórisdóttir
Ásta Þórisdóttir lauk nýverið meistaranámi í hönnun frá Listaháskóla Íslands, lokaverkefnið samanstóð af veggteppi, úlpu og færanlegu eldhúsi, en upphafið má rekja til þess þegar Ásta var að losa kartöflugarðinn sinn við svokallað illgresi. 14. maí 2018
Agnes Jónsdóttir – Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Hólmavíkur er eitt þeirra leikfélaga á landsbyggðinni sem enn setur upp eina eða fleiri sýningar á hverju ári til mikillar gleði fyrir gesti og greinilegt er að gleðin er ekki síður við völd innan leikhópsins. Agnes Jónsdóttir er ritari leikfélagsins en hún hefur verið viðloðandi starfið frá því hún var barn að alast upp á Hólmavík. Kristín Einarsdóttir hitti Agnesi þegar hún var nýkomin heim úr leikferð með leikritið um hina óskammfeilnu Nönnu systur. 21. maí 2016
Íslandsmót í hrútadómum
Hið árlega íslandsmeistaramóti í hrútadómum er haldið af Sauðfjársetrinu á Ströndum og er vinsæll við burður, í þetta skipti mættu um 400 manns , – gestir koma víða af landinu til að taka þátt í keppninni, fá sér kaffi og kjötsúpu og kannski ekki síst til að hitta kunningja og vini enda er maður manns gaman. Bændur og ráðunautar hafa lengi stundað hrútaþukl og valið með því verðlaunahrúta enda ræktun stór hluti búvísinda en það er ekki algengt að keppt sé í því hverjir séu færastir í að þukla hrúta og dæma vöxt og viðmót. 22. ágúst 2016
Jón Ólafsson
Einn vorboðinn á Ströndum er Jón Ólafsson fyrrverandi smíðakennari sem á hverju vori tekur sér stöðu við Kaupfélag Steingrímsfjarðar –þar sem hann tálgar út fugla á staðnum, við borð þar sem hann hefur komið fyrir tugum útskorinna og málaðra fugla og oftar en ekki standa viðskiptavinir erlendir eða innlendir við borðið og útskornu fuglarnir hans Jóns standa eflaust á hillum víða um heiminn og gleðja augu margra. september 2016
Elsa Hansen
Á Hólmavík við Steingrímsfjörð er að öllu jöfnu friðsælt samfélag, þar stunda menn sjoinn, fara í kaupfélgið, dytta að húsum, gera sér kannski stundum dagamun eða annað það sem við mannfólkið fáumst við alla daga- vetur sumar vor og haust. Haustið 1963 var tíðindalitið á Hólmavík en það sem hrjáði bæjarbúa og líklega aðra íbúa við Steingrímsfjörð var að lítið veiddist, bátarnri héldu á miðin dag eftir dag en komu með lítinn afla að landi – en svo var það dag nokkurn í október að bar til tíðinda. Hólmvíkingurinn Einar Hansen, kom að landi með sæskjaldböku eina risavaxna – slík dýr eru mjög sjaldgæf hér á norðuslóðum og engin furða að bæjarbúum hafi orðið forviða. Einar Hansen þessi var fæddur í Noregi en flutti til Hólmavíkur og bjó sér þar heimili og eignaðist börn. Eitt þessara barna er Elsa Hansen sem reyndar hefur verið búsett í Svíþjóð lengi en kemur hingað til Hólmavíkur næstum því á hverju sumri. Ég hitti Elsu í húsinu þar sem foreldrar hennar hófu sinn búskap og bað hana að segja mér fyrst frá því hvernig það bar til að faðir hennar kom til Íslands
Lundaveiði í Grímsey
Örvar Daði Marínósson og fleiri segja frá reynslu sinni af lundaveiði í Grímsey á Steingrímsfirði.
Óskar Torfason – hitaveita á Drangsnesi
Óskar Torfason segir frá því þegar heitt vatn fannst á Drangsnesi og íbúar tóku sig saman um að koma heitu vatni inn í öll hús á staðnum.
