Patricia Burk

Pat sem bjó fyrstu 17 ár ævi sinnar í Flórida segir frá því hvernig það atvikaðist að hún flutti til Íslands og settist að í Bjarnarfirði á Ströndum. 18. apríl 2017

Halldór Logi Friðgeirsson – kræklingarækt

Hér er sagt frá kræklingauppskeru á Steingrímsfirði, matreiðslu kræklings og áti. Þátttakendur voru í þeirri röð sem þeir komu fram: Halldór Logi Friðgeirsson, Halldór Höskuldsson, Franklín Ævarsson, Gunnar Jóhannsson, Ómar Pálsson og Ólafur Ingimundarson. 30. maí 2017

Jenný Jensdóttir

Það eru til hetjur og það eru til hetjur, sum stríð eru stærri í sniðum en önnur, flest heyjum við okkar einkastríð og eigum okkar sigra og töp eins og gengur. Ég hitti konu sem heyr sitt einkastríð á hverjum degi og hefur unnið stóra sigra. 6. júní 2017