Jón Jónsson Strandir 1918

Þann 11. nóvember var opnuð sýningin Strandir 1918 á Sauðfjársetrinu þar sem skyggnst er hundrað ár aftur í tímann og reynt að varpa ljósi á hvernig umhorfs var á Ströndum þetta viðburðarríka ár.

Marta Guðrún Jóhannesdóttir Grunnskóli Drangsness

Fyrir jólin eru haldnar jólaskemmtanir með ýmsu móti um land allt og misfjölmennar. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, fór á jólaskemmtun Grunnskóla Drangsness og leikskólans Krakkaborgar en þar eru samtals þrettán nemendur. Kristín ræddi við skólastjórann Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur og nokkra nemendur

Jóhann Bjarni Skúlason Álfatrú

Út um allt land eru steinar og klettar þar sem álfar eru taldir búa, álfakirkjur eru nokkrar og um áramót er vissara að hafa allt hreint því þá gæti verið von á álfum á leið sinni milli hýbýla sinna. Jóhann Bjarni Skúlason kann sögur af álfum, hann hefur lengi unnið við vegagerð og veit að betra er að sýna álfunum virðingu og skilning.

Björk Jóhannsdóttir Hólmavíkurhátíðin

Hólmavíkurhátíðin sem haldin var sumarið 1990 er mörgum Strandamönnum minnisstæð – en þá heimsóttu staðinn um fimm þúsund manns. Björk Jóhannsdóttir var formaður afmælisnefndar og hér segja þau frá hátíðinni Björk og eiginmaður hennar Stefán Gíslason þáverandi sveitarstjóri sem vissulega gegndi líka mikilvægu hlutverki í hátíðinn