Jón Halldórsson – póstur

Kristín slóst í för með póstinum Jóni Halldórssyni sem séð hefur um að dreifa pósti Strandamanna í nær átján ár. Jón hefur víða komið við og hefur mörg áhugamál. Kristín talaði einnig við Jenný Jensdóttur sem um árabil sá um póstferðir á Ströndum. Meðfylgjandi mynd er fengin af myndavef Jóns: Hólmavík 123.is 5. desember 2017

Sólrún Jónsdóttir – Staðarkirkja

Kristín hitti Sólrúnu Jónsdóttur í Staðarkirkju í Staðardal og fékk að vita ýmislegt um kirkjuna. Nafn Sigríðar Björnsdóttur er nátengt Staðarkirkju og hún lagði ekki aðeins sitt af mörkum við endurbyggingu kirkjunnar. Sigríður gaf líka út disk með íslenskum sönglögum þegar hún var komin yfir áttrætt. 2. janúar 2018

Jóna Þórðardóttir


Kristín Einarsdóttir hitti Jónu Þórðardóttur sem fædd er árið 1934 og kann að segja frá liðinni tið, hvort sem rætt er um kofur, æðadún eða stríðsárin þegar vopnaðir hermenn fóru um friðsæl héruð og búast mátti við tundurduflum á floti í sjónum eða jafnvel sjóreknum líkum í fjörunni. Viðtalið hefst á 26.mínútu. Góðar stundir 9. janúar 2018

María Játvarðardóttir


Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, Maríu Játvarðardóttur sem er félagsmálastjóri þeirra Strandamanna og fékk að vita um hvað starf félagsmálastjóra úti á landi snýst. 16. janúar 2018

Draugasögur af Ströndum

Sögur af draugum, skottum, mórum og fylgjum eru þekktar á Ströndum eins og víðar um landið. Kristín sagði frá nokkrum einkennum drauga og nefndi dæmi um hvernig megi varast þá og las svo söguna af henni Þorpa-Guddu. 30. janúar 2018

Esther Ösp Valdimarsdóttir – sveitadvöl


Lengi þótti nauðsynlegt að senda borgarbörn í sveit. Þau áttu að kynnast sveitastörfunum, læra að vinna og losna úr borginni með tilheyrandi sjoppumenningu. Rannsókn hefur staðið yfir í nokkur ár á sveitardvöl íslenskra barna og Kristín hitti einn rannsakandann Esther Ösp Valdimarsdóttur. Félagar úr leikfélagi Hólmavíkur lásu hluta úr viðtölum sem tekin voru í tengslum við rannsóknina. 27. feb. 2018