Pétur Óskarsson


Kristín Einarsdóttir hitti Pétur Óskarsson ferðamálfræðing sem var í sveit í Árneshreppi á Ströndum og hefur velt fyrir sér hvernig best megi nýta þetta svæði. 6. mars 2018

Jón Eðvald Alfreðsson


Kristín Einarsdóttir hitti Jón Eðvald Alfreðsson sem vann hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar í nær hálfa öld og lengst af sem kaupfélagsstjóri. Jón rifjaði upp ýmislegt af því sem á hans daga dreif á þessum tímum mikilla breytinga. 13. mars 2018

Ásbjörn Magnússon

Ásbjörn Magnússon byggði og rekur gistiheimilið Malarhorn á Drangsnesi, það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hann og konan hans Valgerður Magnúsdóttir hófust handa við þetta verkefni á þeim aldri þegar margir eru farnir að hafa hægar um sig. Kristín Einarsdóttir hitti Ásbjörn og ræddi við hann. 20. mars 2018

Bergsveinn Birgisson – skáld og fræðimaður


Bergsveinn Birgisson rithöfundur hlustaði sem barn og unglingur á sögur afa síns Guðjóns Guðmundssonar frá Bæ á Selströnd og þessar sögur ganga aftur ef svo má segja í mörgum bóka Bergsveins. Kristín hitti Bergsvein og fékk hann til að ræða dvölina á Ströndum, sögurnar og skáldskapinn. 3.apríl 2018

Dagrún Ósk Jónsdóttir – andaglas


Andaglas hefur verið stundað af unglingum um árabil, og líklega löngu kominn timi til að rannsaka þetta umdeilda fyrirbæri. Kristín hitti Dagrúnu Ósk Jónsdóttur sem er að ljúka við meistaraprófsritgerð í þjóðfræði þar sem rannsóknarefnið er einmitt andaglasið. Góðar stundir með öndunum. 10. apríl 2018

Eiríkur Valdimarsson


Fyrir tíu árum var fyrst haldið húmorþing á Hólmavík þar sem fræðimenn, grínistar og áhugafólk um húmor og hlátur koma saman og ræða málin. Fimmta þingið var haldið fyrir stuttu og þar talaði t.d. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur um hið skemmtilega efni, kynlíf í gamla bændasamfélaginu. Kristín hitti Eirík og fékk hann til að ræða t.d. um kynlíf forfeðra okkar 24. apríl 2018

Einar Indriðason – Sorpsamlag Strandasýslu

Mikil hugarfarsbreyting á hefur orðið hvað varðar meðferð sorps, enda eigum við bara eina jörð og þurfum auðvitað að gæta hennar og vernda. Kristín hitti Einar Indriðason framkvæmdastjóra Sorpsamlags Strandasýslu og þau ræddu sorphirðu og flokkun á Ströndum 2. maí 2018

María Maack

María Maack vinnur hjá Vestfjarðastofu og sér þar um ýmis verkefni. Kristín hitti Maríu á skrifstofu hennar á Hólmavík, en hún hefur aðsetur bæði þar og á Reykhólum og fékk hana til að segja frá störfum sínum hjá Vestfjarðastofu og ýmsu öðru sem María hefur fengist við. 8. maí 2018