Tapio Koivukari Dóttir hins brennda

Galdrar og galdraofsóknir fóru eins og eldur í sinu um Vestfirði á sautjándu öld og einn þeirra sem brenndur var fyrir galdra var Þórður Guðbrandsson og þegar það þótti ekki duga til hófust ofsóknir á hendur Margréti dóttur hans. Finnski rithöfundurinn Tapio Koivukari ferðaðist um Vestfirði og kynnti nýútkomna bók sem fjallar um þessa atburði og bókin heitir – Galdra-Manga, dóttir hins brennda.

Comments are closed.